prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




Heimsækið Vestmannaeyjar
- með flugi eða ferju
Í Eyjum er boðið upp á fjölbreytta gistimöguleika, hótel, gistiheimili og tjaldstæði ásamt úrvali veitinga- og skemmtistaða. Boðið er upp á fjölmargar skoðunarferðir á sjó, í lofti og á landi. Stórkostlegt útsýni, fjölskrúðugt fuglalíf, þ.á m. stærstu lundabyggð í heimi.
Eldgosið 1973 lagði Vestmannaeyjabæ næstum í eyði en þrátt fyrir það er þar í dag ein stærsta verstöð landsins. Gosið er ekki aðeins nálægt öllum í minningunni, heldur eru ummerki þess um allan Vestmannaeyjabæ.
Á Byggðasafninu í Eyjum er að finna lifandi sýningu um gosið og í félagsheimilinu eru daglega sýndar myndir frá þessum atburðum.
Í Vestmannaeyjum er ennfremur að finna eina sædýrasafnið á Íslandi.
Í Eyjum er glæsilegur 18 holu golfvöllur. Auk þess er alltaf spennandi að fara í fuglaskoðun um eyjarnar. Í boði eru óvenjulegar gönguferðir, hestaleiga og sjóstangaveiði. Greiður aðgangur er að íþróttasölum og sundlaug með heitum pottum og gufubaði.

Verið velkomin til Vestmannaeyja.

Kynningarbæklingur um Vestmannaeyjar Fylgdu mér í Eyjar út:

http://www.xtreme.is/net/skraarsafn/vestmannaeyjar_is/1092829066.pdf ,

Til baka...

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason