prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja
Íþróttamiðstöðin var byggð árið 1976, þá eitt glæsilegasta íþróttamannvirki landsins, og er enn í dag eftir gagngerar endurbætur og með tilkomu nýs fjölnota íþróttasalar.
Í Íþróttamiðstöðinni er :
  • sundlaug 25 m x 11 m með 0.9% söltu vatni og 1 m stökkbretti.
  • 2 heitir pottar 41°c og 42°c
  • 2 nuddpottar 40°c
  • 1 vaðlaug 37°c
  • útivistarsvæði
  • 2 sánaböð
  • 4 sólarlampar
  • líkamsræktarsalur að fullkomnustu gerð
  • fundarsalur með fullbúnu eldhúsi
  • félagsaðstaða
  • 3 stórir íþróttasalir með vallarstærð 20 m x 40 m
  • fullkomin aðstaða fyrir fimleika þar á meðal nýjasta útfærsla af fimleikagryfju og tækjum
  • veitingasala
Starfsemi sundlaugar :
Salti er blandað út í vatnið upp í 0.9 % sem er sama saltinnhald og er í mannslíkamanum, vatnið verður heilsusamlegra og mun léttara og notalegra að synda í því.
 ,
Um helgar er sundlaugarhiti hækkaður úr 29.8°c í 32°c sem er vinsælt hjá fjölskyldufólki og ungabörnum. Fjölbreytt starfsemi fer fram í sundlauginni þ.e skólasundkennsla, almennir tímar,sumarsundnámskeið, ungbarnasund um helgar, fullorðinsundkennsla, sundæfingar og sundmót með allt að 200 – 300 keppendum.
 
 
Vetraropnun 1. sept - 1. júní (sjá nánar)
Sumaropnun 2. júní - 31. ágúst (sjá nánar)
 

Íþróttasalir

Íþróttasalirnir eru 3, allir velbúnir íþróttatækjum og hægt er að skipta þeim öllum í smærri einingar, þá er einnig hægt að nýta 2 nýju salina saman sem 1 stóran, sem er þá , með áhorfendarými fyrir 800 – 1000 manns. Í íþróttasölum fer fram öll leikfimikennsla, æfingar mót og kappleikir hjá íþróttafélögum bæjarins, margskonar sýningar s.s bílasýningar, Vor í eyjum, tónleikar ofl. Öll er Íþróttamiðstöðin hönnuð með þarfir fatlaðra í huga hvergi eru stigar eða þröskuldar og sjálfvirk lyfta og sérhannaðar tröppur til þess að komast ofaní laugina. Á hverju ári eru hér stórmót með allt að 1200 keppendum s.s Shellmót, Pæjumót og stórar handboltaturneringar, sem auðvelt er að koma vel fyrir v/fjölda íþróttasala.

Starfsmannafjöldi í Íþróttamiðstöð eru miðað við 100 % starf 14.5 stöðugildi.

Heimilisfang:
Illugagötu
900 Vestmannaeyjar
Sími:
488 2400
Fax:
481 2402
Veffang:
www.vestmannaeyjar.is
Netfang:
sportvm@eyjar.is
Forstöðumaður:
Arnsteinn Jóhannesson
Opnunartímar:
Frá 1. júní - 31. ágúst er opið:
  • Virka daga    kl. 06.15 - 21.00
  • Laugardaga   kl. 09.00 - 18.00
  • Sunnudaga    kl. 09.00 - 18.00
Frá 1. sept. til 1. júní er opið:
  • Kl. 06.15 - 08.00
  • Kl. 12.00 - 13.00
  • kl. 14.30 - 21.00
  • Laugardaga kl. 09.00 - 17.00
  • Sunnudaga kl. 09.00 - 17.00
Líkamsræktarsalur, pottar og sólarlampar eru opnir allan daginn frá kl. 07.00 - 21.00 og um helgar eins og opnunartími sundlaugar er.
 
 
Til baka...

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason