prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




26. 07. 2010 - Fundargerð hefur ekki hlotið afgreiðslu bæjarstjórnar.

Umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyja - 122. fundur
 
 haldinn í fundarherbergi Umhverfis- og framkvæmdasviðs,
mánudaginn 26. júlí 2010 og hófst hann kl. 12:00
 
 
Fundinn sátu:
Gunnlaugur Grettisson form., Kristín Jóhannsdóttir vara form., Hörður Óskarsson, Drífa Kristjánsdóttir, Pétur Fannar Hreinsson, Sigurður Smári Benónýsson, Ólafur Þór Snorrason.
 
Fundargerð ritaði: Sigurður Smári Benónýsson, skipulags-og byggingarfulltrúi
 
 
Dagskrá:
 
1. 201007026 - Höfðaból. Umsókn um leyfi fyrir geymslubyggingu.
(6 mál frá 121 fundi)
Árni Johnsen sækir um byggingarleyfi fyrir 50m2 geymslubyggingu í landi Höfðabóls sbr. innsend gögn.
-Fyrir liggur samþykki meðeigenda.
-Fyrir liggur umsögn frá svæðisstjóra Vegagerðarinnar.
Afgr. ráðs:
Ráðið samþykkir erindið.
Byggingarleyfisgjald kr. 70.291 skv. gjaldskrá byggingarfulltrúa nr. 117/2010.
Afgreiðsla þessi er skv. skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997.
 
 
2. 201007048 - Umsögn vegna umsóknar Einis Ingólfssonar f.h. Ísjakans ehf.
Fyrir liggur til umsagnar erindi frá Sýslumanninum í Vestmannaeyjum varðar nætursöluleyfi Ísjakans fyrir komandi Þjóðhátíð.
Afgr. ráðs:
Ráðið veitir jákvæða umsögn varðar nætursölu, en leggur jafnframt til að leyfið verði skilyrt til kl. 03 umsótta daga þar sem starfsemi Ísjakans er í miðju íbúðarhverfi.
 
 
3. 201007041 - Strembugata 16. Umsókn um byggingarleyfi
Heiðrún Lára Jóhannsdóttir Strembugötu 16 f.nr. 218-4858 sækir um leyfi fyrir gluggabreytingum sbr. innsend gögn.
Fyrir liggur samþykki meðeigenda.
Afgr: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 15.7.2010.
 
 
4. 201007040 - Vallargata 10. Umsókn um byggingarleyfi
Sigmar Valur Hjartarson Vallargötu 10 sækir um leyfi fyrir gluggabreytingum sbr. innsend gögn.
Afgr: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 15.7.2010.
 
 
5. 201007073 - Strandvegur 54. Umsókn um byggingarleyfi
Júlíus G. Ingason f.h. húseingenda sækir um leyfi fyrir nýjum glugga á vesturgafl húsnæðis. Einng er sótt um leyfi fyrir breytingum á núverandi glugga vesturhliðar og breytingum innanhúsfyrirkomulagi sbr. innsendar teikningar.
Afgr: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 26.7.2010.
 
 
6. 201007074 - Vestmannabraut 67. Umsókn um byggingarleyfi
Guðrún Petra Ólafsdóttir Vestmannabraut 67 sækir um leyfi fyrir að einangra og klæða fasteign að utan með bárustáli.
Afgr: Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 26.7.2010.
 
 
 
 
 
 
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:35
 

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason