Byggðasafn Vestmannaeyja var stofnað árið 1932. Frumkvöðlar að stofnun safnsins voru Þorsteinn Þ.Víglundsson, Eyjólfur Gíslason, skipstjóri frá Bessastöðum og Árni Árnason símritari, en þeir sáu hættuna á því að menningarverðmæti myndu fara forgörðum ef ekki yrði hafist handa við söfnun þeirra. Fyrstu árin var munum komið fyrir í geymslu á heimili Þorsteins, en síðar fékk safnið inni á háalofti nýbyggingar Gagnfræðaskólans, og árið 1964 var safnið opnað almenningi á 3. hæð Sparisjóðsins. Safnið flutti svo í nýbyggt húsnæði Safnahúss 1978.
Um Landlystina
Húsið Landlyst er annað elsta hús Vestmannaeyja, byggt árið 1847 af hjónunum Sólveigu Pálsdóttur, ljósmóður, og Matthíasi Markússyni, snikkara.
Hugmyndin var í upphafi að húsið yrði fæðingarheimili og hluti af átakinu sem fór fram á útrýma sjúkdómnum Ginklofa eða Stífkrampa í Vestmannaeyjum. Sólveig stundaði störf sín frá húsinu og bjó jafnframt þar með fjölskyldu sinni til ársins 1968 en þá fluttist hún til Reykjavíkur og Þorsteinn keypti húsið. Hann bjó þar og starfaði til ársins 1902. Húsið var íbúðarhús til 1972 en þá keypti Vestmannaeyjabær það og hafði margvíslega starfsemi þar til ársins 1988. Árið 1992 var húsið tekið niður og sett í geymslu þar til að það var endurbyggt á Skanssvæðinu árið 2000. Í dag er húsið hluti af Byggðasafni Vestmannaeyja og eru þar til sýnis læknaminjar og saga Ginklofans í Vestmannaeyjum sögð.
Safnahúsinu
900 Vestmannaeyjar
Sími:
488-2045
Fax:
481-1174
Veffang:
http://www.vestmannaeyjar.is/safnahus
Netfang:
byggdasafn@vestmannaeyjar.is
Forstöðumaður:
Safnvörður:
Opnunartímar Byggðasafns og Landlystar:
Alla daga frá 15. maí til 1. sept kl. 11.00 - 17.00
Frá 1.sept. til 14.maí er safnið lokað, hægt er að heimsækja það eftir samkomulagi.
FUNDARGERÐIR
- 02. september - Bæjarráð
- 01. september - Umhverfis- og skipulagsráð
- 01. september - Fjölskyldu- og tómstundaráð
- 31. ágúst - Fræðslu- og menningarráð
- 25. ágúst - Framkvæmda-og hafnarráð
- 19. ágúst - Fjölskyldu- og tómstundaráð
Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.
Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason

FJÖLSKYLDAN
BÖRN OG UNGLINGAR
ELDRI BORGARAR
Ferðamenn
umhverfisverðlaun 2009



