prenta logo�tprentun af vef Vestmannaeyjab�jar
http://www.vestmannaeyjar.is




Félagsmiðstöðin Rauðagerði
 
Unnið er að endurskipulagningu á starfsemi félagsmiðstöðvarinnar í Rauðagerði með það að markmiði að víkka út starfsemina þar þannig að sem flestir bæjarbúar geti sótt sér afþreygingu og félagsskap þar.  
 
Féló, félagsmiðstöð ungs fólks er starfrækt í húsnæði Rauðagerðis en nú er stefnt á að útvíkka starfsemina þannig að börn frá efri bekkjum grunnskóla og aðrir bæjarbúar geti sótt nýju félagsmiðstöðina. Hugmyndin er að brjóta niður múra á milli kynslóða og jafnvel hópa með því að bjóða upp á aðstöðu þar sem fólks umgengst daglega og tengist saman í gegn um áhugamál, óháð aldri.
 
Áfram er boðið upp á félagsmiðstöð fyrir börn á aldrinum 13-16 ára þar sem stuðla er að jákvæðum þroska ungs fólks og gera þau sjálfstæðari, bæði í verki og félagslegum samskiptum og gera þau hæfari til að takast á við lífið. Áhersla er á viðurkennt tómstundastarf, forvarnir, fræðslu, örvun félagsþroska og jákvæðra samskipta.
 
Starfsemi Vosbúðar sem hugsuð var fyrir aldurshópinn 16-25 ára færist inn í félagsmiðstöðina Rauðagerði . Lagt er upp með að eiga gott samstarf við aðila sem tilbúnir eru að koma inn í félagsmiðstöðina  með skipulagt starf eða námskeið
 
Hér er dagskrá/viðburðaská félagsmiðstöðvarinnar Rauðagerðis.
Heimilisfang: Rauðagerði v/Boðaslóð, 900 Vestmannaeyjar

Sími: 481 1980 / 481 2280

Fax: 481 2680

Veffang: http://www.facebook.com/raudagerdi

Forstöðumaður: Sigþóra Guðmundsdóttir  sigthora@vestmannaeyjar.is

Opnunartímar Félagsmiðstöðvar:

Mánudaga – föstudags frá kl. 9.00 - 12.00 og 14.00 – 18.00

Mánudaga - fimmtudaga frá kl. 19.30 – 22.00

Föstudaga frá kl. 20.00 – 22.30

Dagskrá Rauðagerðis:

Nóvember

Desember
 

Til baka...

Þann 21.júlí Kl. 7.30 2010 verður Land-Eyjahöfn tekin í notkun. Þá verður hægt að sigla milli lands og Eyja 7 sinnum á dag og tekur sigling um 25 mín.

Fréttir af Land-Eyjahöfn

Mynd: Frosti Gíslason