Húsnæðis­stuðningur

Starfsmenn félagsþjónustu veita einstaklingum og fjölskyldum ráðgjöf og upplýsingar um húsnæðismál og húsaleigusamninga. 

Umsýsla á félagslegu húsnæði, úthlutun félagslegra leiguíbúa í eigu bæjarins og greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings fer einnig í gegnum félagsþjónustu Vestmananeyjabæjar. Almennar húsaleigubætur/húsnæðisbætur fara fram hjá Greiðslustofu húsnæðisbóta á vegum Vinnumálastofnunar. Sérstakur húsnæðisstuðingur er greiddur af sveitarfélaginu.

Almennar húsnæðisbætur

Þann 1. janúar 2017 tóku í gildi ný lög um húsnæðisbætur sem samþykktar voru á Alþingi síðastliðið sumar. Lög um húsaleigubætur með skilgreindu hlutverki sveitarfélaganna varðandi afgreiðslu þeirra eru því fallin úr gildi.

Greiðslur húsnæðisbóta, eins og þær kallast samkvæmt nýjum lögum, eru inntar af hendi hjá Greiðslustofu húsnæðisbóta á vegum Vinnumálastofnunar. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðunni www.husbot.is en þar er hægt að sækja um húsnæðisbætur og einnig er þar aðgengileg reiknivél, sem umsækjendur geta nýtt sér. Eins og áður þarf að endurnýja umsókn um húsnæðisbætur á hverju ári fyrir 20. janúar.

Frekari upplýsingar og aðstoð má nálgast heimasíðunni www.husbot.is, hjá Vinnumálastofnun í síma 515-4800 .

Sérstakur húsnæðisstuðningur

Með nýrri lagasetningu um húsnæðisbætur kallast nú sérstakar húsaleigubætur, sérstakur húsnæðisstuðningur. Sérstakur húsnæðisstuðningur verður áfram greiddur frá sveitarfélögum. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað um sérstakan húsnæðisstuðning á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar (www.vestmannaeyjar.is), inn á íbúagátt eða á skrifstofu félagsþjónustu Kirkjuvegi 23. Athygli er vakin á því að umsækjendur verða að hafa sótt um húsnæðisbætur fyrst hjá Greiðslustofu.

Sérstakar húsnæðisstuðningur er fjárstuðningur til greiðslu húsaleigu vegna samþykktra íbúða á almennum markaði til viðbótar við almennar húsnæðisbætur. Aðstæður umsækjenda eru metnar út frá ákveðnum tekjuviðmiðum.

Nánari upplýsingar gefa starfsmenn félagsþjónustu (felags@vestmannaeyjar.is)  og í síma 488 2000